DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:04. okt. kl 14:00-14:30
Skráð 1. okt. 2026

Eskiás 3 íb303

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
1.042.857 kr./m2
Fasteignamat
75.750.000 kr.
Brunabótamat
68.400.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 2023
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2523634
Landnúmer
231027
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
frá 2023
Raflagnir
frá 2023
Frárennslislagnir
frá 2023
Gluggar / Gler
frá 2023
Þak
frá 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Háborg fasteignasala, Kristín Högna nemi í löggildingu og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu, stór glæsilega og vel skipulagða íbúð í Eskiás 3A á annari og þriðja hæð með sérinngangi í Ásahverfinu í Garðabænum. Skammt frá skólum, leikskólum, íþróttasvæði og verslunarkjarna í miðbæ Garðabæjar.

Um er að ræða sérlega flotta íbúð, gengið inn um sérinngang af 2.hæð. Í forstofu er rúmgott rými fyrir fylgihluti. Úr forstofu er bogadreginn stigi upp á næstu hæð sem er teppalagður. Þegar upp er komið blasir við stór glæsilega íbúð með mikilli lofthæð og stórri glæsilegri eldhúsinnréttingu með eyju til að sitja við. Í eldhús er mikið og gott vinnupláss. Eldhúsið er opið inn í stofu, sem er rúmgóð og björt og þaðan er útgengt út á svalir, með útsýni bæði yfir lokaðann inngarð eða yfir hverfið. Í búðinni eru tvö svefnherbergi, annað hjónaherbergið með mikilli lofthæð og góðum sápum. Barnaherbergið er einnig bjart og með skápum. Þriðja herbergið er skráð geymsla en nýtist sem herbergi með góðum glugga og parketi á gólfi, eins og í íbúðinni. Baðherbergi er með góðri snyrtiaðstöðu, það er flísalagt að hluta. Góðar skúffur undir handlaug og spegla skápur fyrir ofan. Á baði er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.  Frábær staðsetning, skammt frá skólum, leikskólum, íþróttasvæði og verslunarkjarna í miðbæ Garðabæjar.

Skráning hjá HMS:
Íbúðin er 91,0 fm. á annari og þriðju hæð, með aukinni lofthæð og sérinngangi. Allt innan íbúðar.

Húsið:
Eskiás 3 er fjöleignarhús á þremur hæðum, samtals 35 eignir og var byggt árið 2023. Hannað af Batteríið arkitektar og voru húsin hönnuð með það að markmiði að hámarka sérbýlis upplifun íbúa, sem hefur tekist einstaklega vel. Vandaðar viðhaldslitlar klæðningar gefa húsunum fjölbreytta mynd og geta aukið á sérbýlis upplifum íbúa. Húsin mynda ferning utanum skjólgóðan inngarð og eru allar íbúðir með aðgengi eða glugga í átt að inngarðinum. Hæð húsana eru 2-3 hæðir.

Nánar um eignina:
Gengið er inn af götu upp á 2.hæð, þaðan er gengið inn í íbúðina. Sér inngangur. Rúmgóð forstofa tekur einstaklega vel á móti, möguleiki á að hafa geymslurými undir stiganum. 

Eldhús:
Sérlega glæsilegt og innréttingin stór með miklu vinnuplássi. Eyja í eldhúsi til að sitja við. Virkilega opið og bjart eldhús, með vönduðum tækjum. 
frá Whirlpool. Uppþvottavél frá Electrolux og vaskur og blöndunartæki frá Grohe.

Stofa:
er opin og björt með stórum gluggum, sem gefur rýminu mikið gildi með þessar miklu lofthæð og með útgent á stórar svalir til suðvestur  

Herbergi
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og mikilli lofthæð. Barnaherbergi einnig bjart og rúmgott með skápum. Þriðja herbergið sem er einnig bjart og rúmgott en er skráð hjá HMS sem geymsla. Nýtist vel sem þriðja svefnherbergið sem er 9,6 fm að stærð.

Baðherbergi:
með snyrtilegum flísum að hluta, góð snyrtiaðstaða, innangeng sturta skúffur undir handlaug og spegla skápur fyrir handlaug. Á baði er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. 

Svalir:
Stórar svalir sem snúa í suðvestur. Þær snúa inn í fallegann afgirtan og skemmtilegann garð og það er útsýni yfir hverfið.

Gólfefni:
Ljóst síldarmynstur á parketi á allari íbúðinni fyrir utan flísar á votrými og teppi á stiga.

Húsfélag:
Í húsinu er virkt húsfélag, mánaðarleg útgjlöd eru kr: 14.630-. Áaðalfundi 2026 var rætt um að fá tilboð í gluggaþvott. Sjá aðalfundargerð 14.01.2026 (óundirrituð).

Lóðin 
Bílastæði eru sameiginleg með öllum húsunum og gert er sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða. A lóðinni eru 32 stæði og 2 fyrir hreyfihamla og utan lóðar meðfram Eskiás eru 14 stæði og þar af 2 hreyfihamlaða. Eina sameign húsins er miðlæg hjóla og vagnageymsla auk tæknirýmis.

Hverfið:
Eskiás 3A stendur á grónum stað í Ásahverfinu í Garðabænum skammt frá skólum, leikskólum, íþróttasvæði og verslunarkjarna í miðbæ Garðabæjar. Eskiás liggur fyrir ofan Sjálandshverfið og nýtur því útsýnis í átt til sjávar og yfir til borgarinnar. Staðsetningin er örstutt frá megin ökuleiðum og einnig er gert ráð fyrir einni af meginstöðvum borgarlínunar til framtíðar. 

Nánari upplýsinga veitir Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og kristinhogna@haborg.is og Jórunn lögg.fasteignasal í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/08/20236.950.000 kr.74.000.000 kr.91 m2813.186 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efstihjalli 7
Efsta hæð
Skoða eignina Efstihjalli 7
Efstihjalli 7
200 Kópavogur
94 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
Bílastæði
Opið hús:08. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
89.1 m2
Fjölbýlishús
312
1031 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78.5 m2
Fjölbýlishús
212
929 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
85.9 m2
Fjölbýlishús
312
1047 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin