
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í fjögurra íbúða parhúsi við Hæðargarð 20 í Reykjavík. Eignin er á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu. Íbúðin og húsið hafa verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Útgengt er úr stofu á rúmgóðan suðurpall og flísalagða verönd sem tilheyra íbúðinni. Sameiginlegur garður er gróinn og skjólgóður.
Íbúðin er skráð 62,1 m² og skiptist í forstofu, hol, geymslu, stofu/borðstofu, eldhús og svefnherbergi ásamt baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús er í sameign.
*** SÖLUSÝNING: HÆÐARGARÐUR 20 ÍBÚÐ 101, MIÐVIKUDAGINN 14. OKTÓBER 2026 KL 17:30-18:00. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***
Af öryggisástæðum tökum við eingöngu á móti skráðum gestum í opið hús.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Hæðargarður 20 Íbúð 101.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 698-9470 eða með tölvupósti á johanna@husaskjol.is.
Nánari lýsing á eigninni
Gólfefni: Harðparket og flísar.
Forstofa: Flísalögð. Til hægri er gengið inn í sameiginlegt þvottahús en geymslan er til vinstri og þar eru hillur.
Hol: Endurnýjuð, hvít glerhurð aðskilur forstofuna frá holi íbúðarinnar, sem tengir saman önnur rými hennar. Í holinu er endurnýjaður tvöfaldur fataskápur með speglum.
Eldhús: Endurnýjuð, hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli. Hvít eldavél með keramikhelluborði og háfur úr stáli.
Stofa/borðstofa: Bjart og opið rými með útgengi á rúmgóðan suðurpall og þaðan á flísalagða verönd.
Baðherbergi: Endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með skúffum og innbyggðum vaski ásamt efri skápum með speglum. Sturta með glerhurðum og upphengt salerni.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðum, hvítum fataskápum og miklu skápaplássi.
Sameiginlegt þvottahús: Í sameign er þvottahús þar sem hvor íbúð hefur sína þvottavél og þurrkara.
Garður og útisvæði: Garðurinn er að hluta til sameiginlegur, snýr til suðurs og er einstaklega fallegur, gróinn og skjólgóður. Íbúðinni fylgir rúmgóður timburpallur með skjólveggjum og flísalögð verönd.
Framkvæmdir og endurbætur á íbúð og húsi á síðustu árum
Í íbúðinni hefur meðal annars verið endurnýjað baðherbergi, eldhús, gólfefni, innihurðir og útidyrahurð. Skipt var um alla ofna á árunum 2023–2024.
Árið 2014 var skipt um alla glugga í íbúðinni og húsinu, að undanskildum gluggum í geymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
Árið 2018 var opnað fyrir nýja svalahurð úr stofu og byggður rúmgóður timburpallur með skjólveggjum og flísalögð verönd.
Skipt var um þak og þakrennur árið 2018. Frárennslislagnir út í götu voru endurnýjaðar árið 2020. Einnig hefur verið skipt um allar vatns- og hitaveitulagnir.
Rafmagnstafla í íbúð og sameign var endurnýjuð á árunum 2018–2019, ásamt raflögnum í íbúðinni.
Húsið var múrviðgert, filtað og málað að utan árið 2019. Jafnframt voru útitröppur lagfærðar og snjóbræðsla sett í þær og stéttina fyrir framan húsið.
Sameiginlegi garðurinn var einnig endurnýjaður, meðal annars með jarðvegsskiptum og nýjum gróðri og grasþökum.
Samantekt
Hér er um að ræða fallega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi, rúmgóðum viðarpalli og flísalagðri verönd. Eignin er á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, þar sem stutt er í ýmsa þjónustu. Leikskóli, grunnskóli, verslanir og önnur þjónusta eru einnig í næsta nágrenni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SENDA INN TILBOÐ
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 19/06/2014 | 17.200.000 kr. | 22.900.000 kr. | 62.1 m2 | 368.760 kr. | Já |
| 07/02/2014 | 17.200.000 kr. | 14.600.000 kr. | 62.1 m2 | 235.104 kr. | Nei |
| 23/06/2006 | 12.680.000 kr. | 14.100.000 kr. | 62.1 m2 | 227.053 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
104 | 48,5 | 51,9 | ||
110 | 63,9 | 64 | ||
221 | 75,1 | 63,9 | ||
221 | 80 | 66,9 | ||
101 | 57,7 | 75,5 | ||
105 | 91,2 | 69,5 |