PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu atvinnuhúsnæði að Arnarvöllum 4 í Reykjanesbæ. Húsið er 675 fermetra stálgrindarhús byggt árið 2011, sem stendur á sameiginlegri 6674 fermetra lóð með tveimur samskonar húsum við Arnarvöll 4 í Suðurnesjabæ. Stálgrindin er frá Weckmanin í Finnlandi. Veggir eru úr stálklæðningu sem fest er á langbönd úr timbri, en ytrabyrði útveggja er klætt með gegnheilli álklæðningu. Á húsinu eru fjórar inngönguhurðir og þrjár iðnaðarhurðir.
Húsið skiptist í tvo hluta, fremri og aftari byggingu. Fremri byggingin er tvílyft með millilofti. Á jarðhæðinni er afgreiðslurými, en á millilofti og efri hæð er skrifstofurými ásamt eldhúsi og kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn.
Aftari byggingin skiptist í meginatriðum í verkstæði og þvottarými ásamt geymslurými og óskráðu millilofti yfir tækjageymslu sem er inn af þvottarými.
Inn í afgreiðslurýmið er tvöföld rennihurð. Afgreiðslan er rúmgóð, ríflega 100 fermetrar, innaf henni eru tvö salerni. Á gólfi afgreiðslunnar er nýjar linoleum dúkflísar sem lagðar voru 2025. Gólfhit er í afgreiðslurými.
Innangengt er úr afgreiðslurými inn á geymslusvæði þaðan sem stigi liggur upp á efri hæð og brunahurð inn á verkstæði. Á verkstæðinu er stór innkeyrsluhurð, þar eru tvær bílalyftur ásamt tækjabúnaði til olíu- og dekkjaskipta. Á verkstæðinu eru tvö salerni og sturtuaðstaða, auk inntaksrýmis fyrir rafmagn og hitaveitu. Öflugt rafmagnsinntak er í húsið. Stigi upp á geymsluloft, sem nýtt er sem kaffiaðstaða fyrir verkstæðið. Gólfhiti er á verkstæði sem er með steyptu gólfi.
Inn af verkstæðisrými er þvottaaðstaða sem tveimur stórum iðnaðarhurðum, hvorri á sínum enda auk inngönguhurðar á endagafli hússins. Inn af þvottaaðstöðunni er tækjarými sem hýsir loftpressu, vatnsdælur og tanka fyrir hreinsiefni. Gólfhiti er í þvottarýminu auk hitablásara og ofna, en á gólfinu er ný epoxyklæðning sem lögð var 2025.
Skrifstofuaðstaða skiptist í milliloft og hæð yfir afgreiðslu, samtals 185 fermetra. Þar er fullbúið eldhús ásamt tveimur salernum, björtum skrifstofusal með miklu útsýni auk skrifstofu sem stúkuð er af með glereiningum. Myndavélakerfi er í húsinu sem nær yfir innra og ytra rými þess.
Kringum húsið er malbikuð lóð sem rúmar 80-100 bifreiðar. Þar er einnig niðurgrafin olíugildra sem þjónar öllum húsunum á lóðinni.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.