LIND fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson lgf. kynna: Mánatún 13 – íbúð 407.
Eignin verður aðeins sýnd í einkasýningu.
Glæsileg 127,6 fm íbúð á 4. hæð í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi við Mánatún 13 í Reykjavík. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 127,6 fm, þar af er íbúðin 119,0 fm og 8,6 fm sérgeymsla í kjallara sem merkt er -1-25 á teikningu. Í stigagangi nr. 13 eru alls 23 íbúðir.Skipulag eignarAnddyri/hol, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og tvennar svalir.
Nánari lýsingAnddyri / hol: Eikarparket á gólfi og góðir skápar.
Eldhús / borðstofa: Falleg innrétting og parket á gólfi. Útgengi á yfirbyggðar svalir.
Glæsilegt útsýni til sjávar og fjalla frá borðstofu og eldhúsi.
Stofa: Parketlögð, björt og rúmgóð.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, stórir skápar og útgengi á yfirbyggðar suðursvalir.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagðar veggir upp í loft með ljósum flísum, upphengt salerni með innbyggðum kassa í vegg, glerskilrúm við sturtu og innrétting með skúffum.
Þvottahús: Flísalagt gólf og innrétting með skolvask og tækjum í vinnuhæð.
Önnur atriðiLoftræsting innan íbúðar.
Aukin lofthæð, 2,65 m.
13 fm bílastæði í bílakjallara.
Varaaflsrafstöð er í húsinu.
Brunakerfi tengt stjórnstöð Securitas.
Aðgangsstýring að hæðinni.
Sírennsli tryggir að heitt og kalt vatn kemur hratt í krana.
Ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari fylgja.
Tvær lyftur
Húsið og frágangur:Húsið er hannað af Kanon arkitektum, með nútímalegu skipulagi og vönduðum frágangi. Efla sá um verkfræðihönnun og Lumex um lýsingarhönnun. Timbur/álgluggar eru frá Gluggasmiðjunni. Innréttingar eru sérsmíðaðar með ljúflokunarbúnaði. Skápar eru í anddyri, hjónaherbergi og barnaherbergi. Innréttingar eru í eikarspóni eða sprautulökkuðum flötum. Á baðherbergi eru flísar upp í loft, glerskilrúm í sturtu og innbyggt upphengt salerni.
SameignSameign er með mynddyrasíma, teppalögðu stigahúsi og flísum á anddyrisgólfum.
Sérgeymsla íbúðar er staðsett á sameignargangi.
Hjóla/vagna geymsla er í sameign.
Bílastæði í bílageymslu fylgir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali, í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Hafðu samband og við verðmetum eignina þína að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
• Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% (fyrstu kaup), 0,8% (einstaklingar) og 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
• Lántökugjald af veðskuldabréfi – mismunandi eftir lánastofnunum. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
• Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
• Umsýslugjald til fasteignasölu – kr. 74.900.