LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og timburpalli við Smárbarð 2e í Hafnarfirði. Tvö svefnherbergi, samliggjandi stofur með útgengi á timburpall, eldhús, baðherbergi með sturtu, þvottahús. Eignin er staðsett miðsvæðis í Hafnarfirði þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Suðurbæjarlaug og matvöruverslun í göngufæri. Fallegar gönguleiðir allt í kring.Forstofa/hol: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Dúkur á gólfi, ljós innrétting með góðu skápaplássi, opnanlegur gluggi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi, parket á gólfi. Úgengi úr stofu á timburverönd og þaðan er hægt að ganga í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á sturtuveggjum. Innrétting með handlaug, sturta, salerni, opnanlegur gluggi.
Þvottahús/geymsla: Innan íbúðar, flísar á gólfi, léttar hillur.
Sameiginleg geymsla er við hlið íbúðar.
Allar nánari upplýsingar veitir
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.