SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PARHÚS Í FYRSTU LÍNU Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*
SENNILEGA EIN BESTU KAUPIN Á LAS COLINAS Í DAG:
Vandað og fallegt parhús á tveimur hæðum á frábærum stað í lokuðum botlanga í 1. línu í Roble hverfinu á Las Colinas golfvellinum. Einstakt útsýni yfir golfvöllinn og fallegt gróið umhverfi. Stór einkagarður og aðgangur að fallegum sundlaugargarði, sem er sameiginlegur með nokkrum húsum í kring. Þar er útisturta og salernisaðstaða.
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandað og gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. GOTT SKIPULAG, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Hátt er til lofts í stofunni, sem gefur góða rýmistilfinningu. Notalegur arinn í stofunni. Stór sólstofa framan við húsið sem hægt er að opna vel út í garðinn og tengja við verandirnar við húsið.
Tvær stórar verandir í suður og stór sér garður með einstöku útsýni yfir golfvöllinn (2. og 8. hola). Frábær sólbaðsaðstaða bæði í garðinum og í notalegum sameiginlegum sundlaugargarði. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn, þannig að hægt er að fylgjast með mannlífinu á golfvellinum úr notalegri fjarlægð. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354 777 4277.
Nánari lýsing:Neðri hæð: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð: Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Frábært útsýni yfir golfvöllinn.
Húsið er mjög prívat og vel staðsett í fallegu grónu umhverfi. Garðurinn er stór og hægt að setja einkasundlaug.
Stæði fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.Verð 595.000 evrur + kostn. (86.200.000 ISK + kostn, gengi 1Evra=145ISK)
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Húsið er í endursölu, en hefur fengið gott viðhald og er í góðu ástandi.
Húsið selst án húsgagna eða eftir samkomulagi.
Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.
Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, ofnakerfi, golf, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,