Oft nefndur faðir íslenskrar steinsteypuklassíkur. Múrsléttuð steinsteypuhús með klassískum hlutföllum og vönduðum útfærslum í smáatriðum.
Einar Ingibergur Erlendsson (f. 15. október 1883 í Reykjavík, d. 24. maí 1968) var íslenskur húsameistari og einn af brautryðjendum íslenskrar byggingarlistar, þótt hann hefði ekki formlega arkitektamenntun. Hann var lærður trésmiður og nam húsateikningu við Det Tekniske Selskabs Skole í Kaupmannahöfn, starfaði síðan sem aðstoðarmaður Rögnvalds Ólafssonar og síðar Guðjóns Samúelssonar og gegndi um tíma embætti húsameistara ríkisins. Frá teiknistofu sinni í Skólastræti 5b teiknaði hann á hálfrar aldar ferli um 300 hús af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal um 30 kirkjur. Einar hefur gjarnan verið kallaður faðir íslenskrar steinsteypuklassíkur og meðal þekktustu verka hans eru Fríkirkjuvegur 11, Galtafell, Gamla bíó, Herkastalinn og Hnitbjörg, Listasafn Einars Jónssonar.